HÖNNUN OG NÝBYGGINGAR
Exeter Hótel
EXETER HÓEL OG VEITINGAHÚS VAR HLUTI AF ENDURSKIPULAGNINGU TRYGGVAGÖTUREITS Í REYKJAVÍK.
SKIPULAG REITSINS SNERIST UM SÖGULEGA STAÐSETNINGU HANS Í MIÐBÆNUM OG NÁLÆGÐINA VIÐ GÖMLU HÖFNINA. MIKILVÆGT VAR AÐ NÝ UPPBYGGING STYDDI VIÐ AÐRA STARFSEMI Í NÁGRENNINU OG VÆRI JÁKVÆÐ VIÐBÓT VIÐ MANNLÍFIÐ Í MIÐBÆNUM. EINNIG VAR LÖGÐ ÁHERSLA Á AÐ ENDURHEIMTA GÖTUMYND FYRRI TÍMA OG AÐLAGA NÝBYGGINGAR AÐ GÖTUMYNSTRINU.
HÓTELIÐ SAMANSTENDUR AF TVEIMUR NÝBYGGINGUM OG GÖMLU HÚSI FRÁ 1904 SEM STÓÐ Á REITNUM. ALLAR BYGGINGARNAR ERU TENGDAR MEÐ SKJÓLGÓÐUM INNGARÐI. GAMLA HÚSIÐ GEKK UNDIR NAFNINU EXETER HÚS OG ÞAÐAN KEMUR NAFNGIFT HÓTELSINS. Í ANDA HUGMYNDAFRÆÐI SKIPULAGSINS Á REITNUM VAR EXETER HÚSIÐ ENDURBYGGT Í UPPRUNALEGRI MYND, EN INNRI RÝMI VORU AÐLÖGUÐ AÐ NÝRRI STARFSEMI.
EXETER HÓTEL VEFSÍÐAÞAR SEM SAGAN OG NÚTÍMINN MÆTAST
Exeter Hótel
UPPLÝSINGAR
VERKEFNI: HÓTEL M/106 SVEFNHERBERGJUM, VEITINGASTAÐ OG INNGARÐI
VERKEFNATÍMI: 2015-2018
Staða: LOKIÐ
Staðsetning: Reykjavík
Arkitekt: Gláma Kím
INNANHÚSSARKITEKTÚR: Gláma Kím